Maestro

Algengar spurningar

Hér finnurðu svör um aðild, viðburði og skráningu.

FAQ

Hvernig getum við hjálpað?

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á maestro@hi.is, Instagram eða Facebook.

Maestro og aðild

Hvað er Maestro?

Maestro er félag meistaranema í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Félagið tengir saman nemendur í gegnum viðburði, lærdóm, félagslíf og tengsl við atvinnulífið.

Hverjir geta gengið í Maestro?

Allir sem vilja vera með geta gengið í Maestro, svo lengi sem félagsgjaldið er greitt.

Hvað kostar aðild?

Aðild kostar 5.000 kr. fyrir eina önn eða 7.990 kr. fyrir árið.

Hversu lengi gildir aðildin?

Haustannar-aðild gildir til upphafs vorannar. Vorannar-aðild og árs-aðild gilda til loka haustannar. Tilboð og fríðindi geta breyst yfir sumarið; ný tilboð eru endurnýjuð þegar haustönn hefst.

Hvernig geng ég í Maestro?

Þú fyllir út aðildarformið, millifærir félagsgjaldið og stjórn Maestro staðfestir greiðsluna áður en aðildin er virkjuð.

Viðburðir og skráning

Hvernig skrái ég mig á viðburð?

Á hverri viðburðasíðu er skráningarkassi. Þar sérðu hvort pláss séu laus, verð og hvaða upplýsingar þarf að fylla út.

Hvað gerist ef viðburður er fullur?

Þá ferðu sjálfkrafa á biðlista. Ef pláss losnar færist næsta manneskja á biðlista yfir á staðfestan lista.

Hvað ef það stendur „Mæta bara“?

Þá er engin skráning eða sætatakmörkun. Þú mætir einfaldlega á viðburðinn.

Hvernig afskrái ég mig?

Á viðburðasíðunni geturðu afskráð þig með netfangi og kennitölu, eða beint af þakkarsíðunni sem þú sérð eftir skráningu. Ef þú sleppir plássi getur það farið til næstu manneskju á biðlista.

Fæ ég endurgreitt ef ég afskrái mig?

Já. Hafðu samband við stjórn Maestro á maestro@hi.is eins fljótt og hægt er svo hægt sé að ganga frá endurgreiðslu.

Þarf ég að greiða strax?

Það fer eftir viðburðinum. Greiðsluupplýsingar birtast þegar greiðsla á við. Félagsgjöld eru staðfest af stjórn Maestro.

Persónuupplýsingar

Hvaða upplýsingar birtast opinberlega?

Aðeins nafn getur birst á opinberum skráningarlista. Kennitala, netfang, aðild og greiðslustaða eru aðeins sýnileg stjórn Maestro.

Hversu lengi eru upplýsingarnar geymdar?

Persónuupplýsingar úr viðburðaskráningum eru gerðar ópersónugreinanlegar 90 dögum eftir að viðburði lýkur. Samantekin tölfræði er varðveitt.